Sunday, 15 May 2011

Bjór

Hvers virði er einn bjór? Þú gætir hafa borgað mikinn eða lítinn pening fyrir hann, en hvað færðu út úr bjórnum? Sumir geyma sér bjórinn þar til að loknum degi til að launa sjálfum sér dugnaðinn, meðan öðrum finnst hann aldrei betri en þegar þeir hafa nákvæmlega ekkert gert til að verðskulda hann. Auðvitað er engin leið að setja mönnum fyrir hvernig drekka skal, því það að njóta lífsins mótast af stað og stund.

En ef það er til ein leið til þess að sólunda bjór í þessu lífi, þá er það að bjóða hann ókunnugri stelpu á skemmtistað. Það er einn bjór sem getur allt eins farið beint ofan í klósett, án þess að nokkur lifur í þessum heimi fái að herðast undan honum. Því þú færð ekkert út úr honum, nema forherðingu kvenkynsins.

Nú segi ég þetta ekki af biturð eins og ef til vill kann að virðast, heldur því óskylt atvik minnti mig á þegar ég var niðri í miðbæ Reykjavíkur í góðra vina hópi fyrir mörgum árum. Þá stóð ég við barinn með vinum mínum og ein stelpa gerði mér þann heiður að gefa sig á tal við mig. Reyndar hafði hún ekkert fyrir því að heilsa, heldur spurði mig blátt áfram, hispurslaust, álíka ófeimin eins og hún væri að biðja um sjálfsögð mannréttindi, hvort ég gæti keypt bjór handa sér. Og hún var ekki að grínast, því hún hafði greinilega gengist upp í þessu. Nú er ég ljúflingur mikill, en þarna fann ég í mér styrk til að segja nei. Kannski var það tilhugsunin um alla þá bjóra sem höfðu grandast í iðrum þessarar stelpu. Það hefði engu breytt hvorn veginn ég svaraði. Ekki sá ég hana meira það kvöldið.

Ég verð að játa að jafn fáguð siðspilling hefur sinn sjarma í endurminningunni, en mér finnst hún dýru verði keypt ef þú spillir bjórnum, sem annars myndi treysta bræðralag á meðal manna. Því ef þú býður öðrum strák upp á bjór, þá er hann vinur þinn og bróðir út kvöldið og jafnvel lengur. Og þannig getur bjór verið mikils virði.