Ég skil ekki alveg afhverju ég fann mig knúinn til þess að tjá mig í gær um þennan stjórnmálabloggara sem fór að blanda margræðri og flókinni skáldsögu út í pistil sinn um Evrópumál. Þetta var á moggablogginu. Mér fannst það bara algjör óþarfi af honum að byrja að tala um Halldór Laxness og Sovétríkin. Það eina sem hann ætlaði að segja var að hann er á móti Evrópusambandinu. En vegna þess að hann virtist vera svo reiður út í allt og alla fannst mér eins og ég mætti alveg vera reiður út í hann.