Thursday, 5 May 2011

Fyrsta færsla

Hér er gamla síðan komin aftur upp og ég farinn að skrifa líkt og ekkert hafi í skorist.

Ég íhugaði að skipta um nafn, en lélegar hugmyndir gáfu mér engin grið, Ég gældi ansi lengi við Strindbergþór. En svo hugsaði ég með mér, afhverju nota ég ekki bara gamla góða Albanbergþór? Hann er alveg jafn góður og hvað annað, þó ég brenni ekki af jafn miklum áhuga og áður fyrir Nýja Vínarskólanum. Auk þess sem hann hefur ákveðið brand recognition.

Gott að taka það fram að nokkrir ágætir herramenn hafa einnig tekið upp hanskann fyrir bloggið. Á netinu má enn finna dýrt kveðnar færslur, en magnið er því miður óverulegt. Fólk sem vinnur 40 stunda vinnuviku fyrir framan tölvuskerm hefur hvergi nærri nægilegt lesefni á íslensku og neyðist því ýmist til að lesa eitthvað á ensku, horfa á youtube eða í versta falli vinna vinnuna sína. Mér fannst því sjálfsagt að létta róðurinn með þessum fáu sem hafa skrifað fyrir okkur hin og leggja mitt af mörkum við þetta göfuga starf. Skiljanlega get ég engu lofað um gæði þessa lesefnis, né hversu reglulega ég er fær um að birta hér færslur. En það getur aldrei verið slæmt að gera sitt besta.