Í Frakklandi tala menn um "þær klukkustundir sem steyptu Dominique Strauss-Kahn í pólitíska krísu (tourmente)". Það er mjög harmrænt að hann skuli kannski hafa eyðilagt glæstan feril með því að leggjast svona lágt. Þess vegna langar mig frekar að vita hvað rithöfundar hafa að segja um þetta, heldur en blaðamenn. Íslenski blaðamaðurinn sem sagði að þetta væri "mikið áfall fyrir DSK" komst ekki jafn vel að orði og kollegi sinn í Frakklandi, enda er hann nú harðlega gagnrýndur, sem kennir okkur að í lífinu er stíll stundum mikilvægari en það sem þú hefur að segja.
Einn Frakki kommentar að það versta við þessar fréttir sé liturinn á bindunum sem lögreglan í New York gengur með og bendir á að tíundi áratugurinn sé liðinn.
Þið hafið kannski veitt því eftirtekt að almennilegt fólk er ekki mjög áberandi. Það sést til að mynda mjög sjaldan í fjölmiðlum. En að vera almennilegur er ekki list sem höfðar til stórs hluta þjóðarinnar, svo það skýrir sig sjálft, tel ég.
Heimabrugg ætti að vera fullkomlega löglegt. Það er nægilega hörð refsing að þurfa að drekka það. Að versla í ÁTVR ætti hins vegar að vera ólöglegt, þá myndum við borga okkur fljótt út úr hruninu.
Í fréttum af sjálfum mér þá held ég að ég sé búinn að finna út akkúrat hversu mikið kaffi ég á að nota í kaffikönnuna mína, en kaffikannan mín er ekki sammála. Bragðlaukarnir segja að ég hafi rétt fyrir mér, en skynsemin er í liði með kaffikönnunni.