Viljirðu afar kurteis vera
við venjulegan franskan mann,
er eitt sem þú mátt ekki gera;
það er að vera kurteis við hann.
Formlegheitin farast betur,
vertu fjarrænn ef þú getur.
Ef spengilegur spænskur kall
spyr þig um greiða fyrir sig,
þá er það eflaust lúmskt hans brall,
því eigin vinnu hann veltir yfir á þig.
Tafarlaust tjáðu við bón slíka
að tíminn þinn er dýrmætur líka.
Vittu um Ítali á mannamótum,
að líkami mannsins, ólíkt konum,
er honum færanleg geymsla á fótum,
aðeins fyrir eistun á honum.
Hafðu ávallt þetta í huga,
helst mun það þér við þá duga.