Afsakið hve langt hefur liðið frá síðustu færslu, en ég hafði ekkert að gera og þess vegna hafði ég ekkert að blogga um. Þó bloggin mín fjalli venjulega ekki um það sem ég hef fyrir stafni frá degi til dags, heldur bara eitthvað og oftast ekki neitt, þá finnst mér best að blogga um ekki neitt þegar ég er upptekinn.
Eins og þið hafið séð tók ég upp á því að yrkja í síðustu færslu, en ég get ekki sagt að ég sé ánægður með árangurinn. Mér sýnist ég vera svoleiðis ljóðskáld sem lætur innihaldið bitna á gæðum vísunnar.
Mér barst kvörtun yfir því að hafa bloggað um prófgráður. Það olli sumum vonbrigðum. Ég viðurkenni að það var ögn smáborgaralegt, en þegar talið berst að LÍN veit maður ekki sitt rjúkandi ráð.
En ef ég ætla ekki að blogga um neitt sérstakt, um hvað snýst þá þetta blogg? Ef til vill er það best að við vitum það ekki, því um leið og við komumst að því missum við áhugann? Ég skal þá gera mitt besta til að hlífa ykkur við því.