Friday, 13 May 2011

Vikan

Það er búið að vera mikið að gera í vikunni, svona miðað við hve hæglátt lífið er hjá mér venjulega. Á þriðjudaginn var forpróf í skólanum, maður verður að ná prófinu til þess að fá að taka lokaprófið. Allir náðu prófinu, alveg eins og í fyrra og árið þar áður, en alltaf tekst þeim að stressa mann jafn mikið upp fyrir þetta. Ég spilaði Capriccio fyrir einleiksklarinett eftir Sutermeister sem er mjög fínt stykki. Hin árin völdu þeir alltaf einhverjar leiðinda etýður sem maður nennti varla að æfa, svo þetta var kærkomin tilbreyting.

Pabbi og Soffía hafa verið í heimsókn síðan á mánudag og fara á morgun. Ég átti afmæli á miðvikudaginn og pabbi á afmæli daginn eftir mér, þannig að það var farið fínt út að borða tvo daga í röð. Ég tók líka að mér að flambera kálfalundir og svo var þríréttuð máltíð á ódýrum veitingastað síðasta kvöldið. Það væri synd að segja að við hefðum grennst í vikunni. Það var gaman að fá þau í heimsókn og þetta hefur verið góð hvíld fyrir næstu æfingatörn.

Lokaprófið mitt er 11. júní. Ég spila 3. kafla úr Weber konsert nr 2, Varíasjónirnar eftir Rossini, 5 etýður fyrir einleiksklarinett eftir Komives og Konsertínu eftir Jeanine Rueff. Þetta eru skemmtileg verk, en erfið. Fyrir þetta fæ ég diplómuna mína úr 6. deild, ef allt gengur að óskum. LÍN vill ekki fyrir nokkra muni kalla þetta mastersnám, því það væri synd að leyfa mér að njóta vafans! Þeir segja að ég sé í B.A. námi, þó þeir hafi náttúrulega enga sérfræðinga til að meta það. Ég veit bara eitt, að þetta prógram hefði ég aldrei getað spilað þegar ég kláraði Bachelorinn minn í Svíþjóð. Sem á endanum segir okkur hve prófgráður skipta litlu máli í þessu fagi.