Wednesday, 27 July 2011

Á netinu

Í fréttum í dag var að tveir stjórnarandstöðuþingmenn eru á móti ríkisstjórninni.

Svo sagði Bjarni Ben eitthvað og það var líka í fréttum.

Sigmundur Davíð sagði ekkert í dag, enda var það ekki í fréttum.

Maður verður að passa sig á því þegar maður segir að eitthvað sé vanmetið þar sem í augum margra er það þar með orðið ofmetið.

Ég reyndi að sýna pabba fram á hvað það er skrítið að þegar maður er ungur og ætti að vera að vinna hangsar maður allan daginn, en þegar maður er orðinn eldri og ætti bara að fara að hangsa þá hefur maður enga eirð nema maður vinni allan daginn. Pabbi sagði að hann tæki aldrei frí og hugsaði ekkert um þetta.

Uppfært: Var að horfa á kvöldfréttirnar og Sigmundur Davíð sagði víst eitthvað í dag. Það var í fréttum.