Um daginn horfði ég á kvikmyndina Law Abiding Citizen og langar hér að eiga um hana nokkur orð. Hún fjallar um mann leikinn af Gerard Butler sem lendir í því ásamt konunni sinni að vera stunginn í síðuna þegar vopnaðir menn ráðast inn á heimili hans. Konan hans lendir líka í því að vera nauðgað í sömu árás. Hún deyr ásamt dóttur þeirra en Gerard Butler lifir af því annars væri myndin búin. Til að gera illt verra þá klikkar eitthvað í réttarkerfinu og Darby, sem er aðalskúrkurinn í árásinni, kemst undan með stuttan dóm, því saksóknaranum Jamie Foxx (skrifast með tvem x-um) finnst öruggara að semja við hann.
Nú vorkennir maður Gerard Butler mjög mikið eftir þetta og finnst Jamie Foxx hafa brugðist með því að semja við morðingjann. En skyndilega líða 10 ár þannig að það þýðir ekkert að hugsa um þetta lengur. Dóttir hans Jamie Foxx, sem í síðustu senu var enn í móðurkvið, er skyndilega orðin tíu ára og hann kemst ekki á sellótónleikana hennar. Hann er vinnandi maður og hefur lítinn tíma. En þótt að hann sé dyggðum prýddur eiginmaður og faðir vitum við sem sitjum við skjáinn að mistök fortíðarinnar eru við það að elta hann uppi.
Gerard Butler hefur síðan í þarsíðustu senu verið að upphugsa ráð til að hefna sín, ekki bara á morðingjunum heldur öllum sem áttu hlut að málaferlunum. Hann byrjar á því að setja einhverja ólyfjan í banvænu sprautuna sem annar morðinginn fær í fangelsinu þegar hann er tekinn af lífi og er það frekar illa séð af yfirvöldum. Síðan leitar hann hinn morðingjann uppi og sagar hann í sundur. Þá fer lögreglan heim til Gerards Butler til að handtaka hann og þegar hann sér það klæðir hann sig úr öllum fötunum og gefst upp. Þeir klæða hann síðan aftur í gallabuxur og leiða hann út í handjárnum.
Nú er maður svolítið klofinn í afstöðu sinni hvort þeir eigi kannski bara að sleppa Gerard Butler eða ekki, því hann fór eiginlega yfir strikið þegar hann sagaði manninn í sundur. Maður veit að í raunveruleikanum myndi hann fara í fangelsi, en við vorkennum honum því hann missti fjölskylduna sína og auk þess var hann rosalega skemmtilegur þegar hann lék í Spartverja-myndinni, svo við vonum að það takist einhvern veginn að koma honum út.
En á þessum tímapunkti í sögunni virðist sem handritshöfundarnir hafi byrjað að panikka því þeir vissu ekki hvað átti að gerast næst. Gerard Butler er kominn í fangelsi og það eru bara 40 mínútur búnar af myndinni. En þá kemur í ljós að Gerard Butler er fyrrverandi sérsveitarmaður sem er rosalega góður í að skipuleggja morð og ennfremur var hann búinn að skipuleggja morð á mörgu háttsettu fólki áður en hann fór í fangelsið. Nú má segja segja að Gerard Butler fari alveg yfir strikið því drápin verða frekar handahófskennd, þannig að allt í einu er hann orðinn vondi kallinn og Jamie Foxx sem var að bíða eftir að fortíðin elti hann uppi og ætti ekki að vera góði kallinn, endar sem áhorfandi að öllu þessu, frekar en að hefndin beinist að honum.
Á endanum lenda handritshöfundarnir í algjöru öngstræti, svo Gerard Butler ákveður að sprengja borgarstjórann og Jamie Foxx fattar að hann var búinn að grafa göng inn í fangelsið. Þegar Gerard Butler ætlar síðan sprengja sprengjuna með farsímanum sínum er Jamie Foxx búinn að plata hann og fela sprengjuna undir rúminu hans, þannig að Gerard Butler sprengir sjálfan sig. Þannig endar plottið á þessari mynd um mann sem mótmælir á verklegan hátt ófullkomleika réttarkerfisins með því að saksóknari ríkisins platar hann og lætur hann sprengja sjálfan sig, í staðinn fyrir t.d. að láta hann færa sig í annað fangelsi þar sem hann er ekki búinn að grafa göng. Til að bæta gráu ofan á svart þá fáum við aldrei að sjá harmleikinn um Jamie Foxx sem okkur hafði hálfpartinn verið lofað.
Mjög ruglingsleg mynd, en ég mæli með henni. Hún fær mann til þess að spyrja sig spurninga.